Ég man ekki hvað þessi saga fjallar um.
Hún breytist dag frá degi
og hún fjallar ekki um
það sem hún fjallaði um fyrir ári síðan.
Saga sem er byggð
á sannsögulegum atburðum og engu öðru.
Sagan er ekkert skemmtileg
ef ekkert ótrúlegt gerist.
Saga um ást,
aðallega óendurgoldna,
er hundleiðinleg.
Saga um afrek,
eins og að ná tuttugu einingum á önn í háskóla
og 6,5 í meðaleinkunn á stúdentsprófi.
Hvern langar að heyra hana?
Þessi saga fjallar um gaur
sem datt niður stiga þegar hann var fullur,
allir horfðu á hann
og honum leið eins og fífli.
Þessi saga fjallar um gaur
sem vaknaði á sunnudagseftirmiðdegi
og sagði við sjálfan sig:
„Nei, nei, nei, nei, nei!“
Saga sem engan langar að lesa
og engan langar að skrifa, en ég þarf samt að semja.
Á hverjum einasta degi.