Lífið er betra án guðs


Ef það er eitthvað sem ég þoli minna en trúboða, þá eru það trúleysisboðar (Svona næstum því, alls ekki samt… Pointið er öll predikun böggar mig.) en mér þykir þessi umræða þörf. Það er enginn hér sem ég þarf að sannfæra held ég.

Kristin gildi eru ágæt. Þú átt að vera góður við aðra og svo framvegis. En reglur kristni eru til þess gerðar að skemma lífsgæði. Ég er farinn að halda að þetta sé brandari sem einhver fáviti bjó til í þeim tilgangi að skemma lífið fyrir fávitunum sem myndu trúa honum.
Þér er bannað að gera það sem er skemmtilegt, þér er bannað að gera það sem þig langar til. Þér er ætlað að lifa alla þína ævi með samviskubit yfir dauða Jesú en jafnframt átt þú að hlakka til þess að deyja (en mátt samt alls ekki drepa þig) í von um líf eftir dauðann. Og það er eins fokking gott að þú hafir lifað leiðinlegu lífi því annars brennur þú í helvíti að eilífu.

Ef það er virkilega einhver hér sem ég þarf að sannfæra, þá er þetta til þín:

Njóttu lífsins, því það er ekkert sem bendir til þess að þú fáir annað.

01/06/11 at 2:51am
1 note
  1. villivillain posted this